Skelin – Barnamenningarhátíð í Suðurnesjabæ 13.–19. apríl 2026
Barnamenningarhátíðin Skelin verður haldin í annað sinn í Suðurnesjabæ dagana 13.–19. apríl 2026. Þema hátíðarinnar er tengt skeljum og skrímslum og eru sumir viðburðir litaðir af því. Fjölbreytt dagskrá er í boði þar sem gleði, sköpun og samvera eru í forgrunni.
Markmið hátíðarinnar er að efla barnamenningu í Suðurnesjabæ og skapa vettvang fyrir börn og fjölskyldur til að njóta samveru og upplifana saman.
Skelin er skipulögð í góðu samstarfi stofnana og aðila í Suðurnesjabæ og er styrkt af Sóknaráætlun Suðurnesja. Bæklingur með dagskrá og nánari upplýsingum um hátíðina verður sendur heim með öllum leikskóla- og grunnskólabörnum í Suðurnesjabæ.
Við hvetjum öll til að taka þátt í hátíðinni og njóta þess sem hún hefur upp á að bjóða. Frítt er inn á alla viðburði.